25.7.2008 | 19:21
Rekin úr húsdýragarðinum
Já....mér tókst það sem ég hef haldið að væri nær ómögulegt. Að vera rekin úr Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Ég og Fróði hittum tengdó og dönsku fjölskylduna í Laugardalnum í þessu líka fína veðri. Það var ákveðið að fara í húsdýragarðinn og tengdapabbi bauð okkur öllum. Þangað röltum við Fróði inn í góðri trú eftir að hafa séð til hunds þarna inni og engin hundabannskilti fyrir utan. Við skoðuðum fyrst selina vel og lengi en Fróða fannst þessir hundar hafsins afar áhugaverðir og skemmtilegir. Áfram röltum við og sáum hænsni innan girðingar og héldum okkur utan hennar - enda afar furðuleg og víðsjárverð dýr þar á ferð og Fróði heldur smeykur. Þegar geiturnar voru í augsýn, kom að okkur ung kona sem tilkynnti okkur að Fróðahundar væru bannaðir. Við urðum að vonum frekar súr því Fróði skemmti sér konunglega og fannst hann í fyrsta skiptið samþykktur af borgarbúum sem Fjölskyldumeðlimur...já eða húsdýr jafnvel. Þegar ég spurði um ferfætlinginn frænda hans sem vappaði þarna um, var mér tjáð að hann væri starfsmaður - eða með starfsmanni. Sneypt og sár yfirgáfum við fjölskylduna okkar sem var að fara að grilla pulsur í góða veðrinu og löbbuðum heim.
Við Fróði ætlum að sækja um vinnu í húsdýragarðinum til að fá að skoða selina betur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.7.2008 | 21:37
20.vikna sónar
) og að henni reiðir vel af í bumbunni. Að sjá litla skinnið hreyfa sig og litla hjartað hamast var alveg ólýsanlegt. Þetta er ekki lengur fóstur heldur pínulítil manneskja. Við erum komin aðeins lengra en við héldum eða 20 vikur og 5 daga - og ég er sett 16.nóvember sem er merkur dagur. Sunna Dís frænka mín og Þorsteina amma hans Elvars eiga báðar afmæli þennan dag. Nú er bara að sjá hvort skvísan láti sjá sig á settum degi eins og frænka sín. Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2008 | 13:32
Staðan á okkur í dag
Mig langaði bara að deila með ykkur hvernig bumburæktunin gengi. Við erum semsagt skriðin inní 19.viku með "müüsið" okkar og allt gengur vel. Fengum að heyra þenna líka flotta hjartslátt í 16.vikna skoðuninni og það var æðislegt. Ég er alveg furðu lostin yfir hvað ég stækka um mig miðja...skil ekkert í þessu.
Þetta er allavega algjör fjörkálfur ef marka má lætin og hreyfingarnar - íþróttaálfur eins og pabbi sinn. Við sjáum svo til hvort ég verði eitthvað duglegri að skrifa hérna - lofa engu 

Bloggar | Breytt 4.7.2008 kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.6.2008 | 22:55
Víva Espanja!
Jæja þá erum við komin heim eftir vikudvöl í sól og hita. Endurnærandi að öllu leyti og ég er ekki frá því að Elvar sé á leiðinni að kaupa íbúð þarna.....líka. Heitur og tær sjór er alltaf yndislegur. Laugan var líka hæstánægð að geta pantað sér áfengislausan bjór allstaðar og verið memm í stemmaranum
. Ég setti inn nokkrar myndi í albúm merkt Calpe.
Bloggar | Breytt 22.6.2008 kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2008 | 13:26
AfmælisDoooogg!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.5.2008 | 23:45
Hvað gerist þegar "síðeyrna" hundur fær ís?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.5.2008 | 13:29
Hvar eru afleggjararnir?
Við Erla vinkona vorum að spjalla um daginn og barst talið að stofublómum (sem segir meira um aldur og fyrri störf sem verður ekki rætt frekar hér). Hún hafði tekið eftir því að blessuð blómin eru á undanhaldi og fækkar óðum á íslenskum heimilum. Hver man ekki eftir "afleggjurunum" í glösum útí eldhúsglugga? Hvergi fór maður í heimsókn með móður sinni án þess að blómin voru tekin út og angar af hinum og þessum plöntugreyjum sníktir af húsfreyjunni áður en haldið var heim aftur.
Án þess að hafa hugmynd um spjall okkar vinkvenna hafði Elvar orð á því heima hjá foreldrum sínum daginn eftir - þegar hann var samsviskusamlega að vökva blómin í fjarveru þeirra - að þetta væri nú ekki eins mikill "blómakleppur" og áður. Rifjaði hann upp þá kvöl og pínu sem það var að leita blómin uppi í öllum herbergjum til að gefa þeim að drekka. Þá rann upp fyrir mér að ég er komin með tvær stórar plöntur sem áttu heima hjá mínum foreldrum og þar fækkar einnig í blómaflórunni. Persónulega finnst mér þetta afar skondið þar sem blómaplöntum fjölgar óðum heima hjá mér - manneskjunni sem er skráð í heimsmetabók Guinnes fyrir að ná að murka lífið úr harðgerðustu kaktusum 
Höfum við ekki lengur tíma fyrir blómin? Hvað veldur þessu? Og enn og aftur....Hvar eru afleggjararnir??
Bloggar | Breytt 30.7.2008 kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 16:59
Hvað varð um Eltihrellana og Ofsóknabrjálæðingana?
Er viðkomandi bara "hrellir" núna? Hvernig væri að fara að ákveða hvað skal kalla þessa blessuðu einstaklinga sem sitja fyrir fræga fólkinu....maður getur nú orðið ringlaður
Hvað varð annars um "að ofsækja"? Er það dottið úr tísku?
Mufumama furðar sig á blessaðri íslenskunni og vonar að hún hafi beygt "eltihrellir" rétt
|
Hrellir Umu Thurman fundinn sekur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 30.7.2008 kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2008 | 12:16
Eltihrellir!
Skemmtilegri þýðingu á orðinu "stalker" hef ég hvorki augum né eyrum borið. Bara þetta orð myndi sjálfsagt stöðva mig í að taka upp þessa iðju.
Fréttablaðið á heiðurinn af orði dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.4.2008 | 09:58
MosaMúfú in da house!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)




erla1001
poppoli
malacai
brylli
hrekkjavaka
myndamen
strunfridur
danmerkufarar
vandekamp












